Heilavindur Heiðu

Hver er bestur?

30.04.2009 03:47:42 / Heiða sól

ég á að vera sofandi en get það ekki

Halló kæra fólk,

Hér hef ég ekki skrifað staf í mjööööööööööööög langan tíma. Enda fésbókin eiginlega tekin við af blogginu.
Ég er ennþá í skólanum, er að klára annað árið mitt í upp-og mennt og tómstundafræði. Jább, á sama tíma að ári verð ég að fara útskrifast úr Háskóla Íslands, það er í það minnsta planið. :)

Orðin sem ég skrifaði í færsluna hér á undan um það að þegar við erum ,,down to nothing God í up to something".....passa samt alveg ótrúlega vel inn í lífið mitt í dag eins og þá og eru í raun ennþá jafn sönn og áður................. ;)

Jæja Krúttin mín sem ennþá eigið það til að kíkja hér inn, takk fyrir það og ég bið PABBA minn á himnum, GUÐ að blessa ykkur til anda, sálar og líkama og varðveita ykkur í sér allt til......................

Góða Nótt og dreymi ykkur vel. Knús og kossar.

Heiða sól...........langt síðan ég hef skrifað þessi tvö orð saman.  :d



» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 20:18:44 / Heiða sól

15. nóvember

Hæ allir :)

Ég sit hér og er að skoða ýmislegt í tölvuheimum og fannst það væri komin tími til að skrifa eitthvað smávegis á þess síðu mína.

Ég er á fullu að skrifa ritgerð í afbrotafræði, það verður flott ritgerð. :)
Fór að mótmæla með bestu vinkonu minni í dag, það var gott að vera með og sýna sig og sjá aðra.

Á Omega var ég að hlusta á Cristal Cathidral soninn og hann gaf mér heilmikið með þessari setningu

,,When you are down to nothing, God is up to something"  amen:!::!:

ég er alveg sammála þessum orðum.

Ég ætla fara halda áfram að skrifa, við verðum í bandi og takk fyrir mig í dag.
Pabbi, Guð faðir, verði með ykkur og munum að hann veit upphaf og endir alls. ;)

Kær kveðja
Heiða sól

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 15:20:06 / Heiða sól

1. september 2008

Hæ allir

Um helgina fékk litla ömmustelpan mín nafn og var skírð til þjóðkirkjusafnaðarins. Hún heitir............. Þóra Ósk eftir pabba sínum og mömmu sem heita Sævar þór og Guðrún Ósk.  Þetta var yndisleg stund og litla daman skríkti og hló allan tíman.:lol: Amma fékk tár í augun yfir þessu öllu saman og hér var allt troðfullt af fólki út úr dyrum. Um það bil 50 af nánustu fjölskyldumeðlimum þeirra Sævars og Guðrúnar.:d

Ég er líka búin að fá stundatöflu vetrarins og líst mér bara vel hana.
Ég er einning búin að fá einkunn úr prófi sumarsins og ég var hæðst af þeim þremur sem tóku próf núna. Ég fékk 8.5 út úr áfanganum og ég ætla og skal trúa þessari tölfræði. :!::!::!:
8| ætli þessi kall lýsi líðan minni ekki best þessa stundina. 8|

Hlakka til að heyra frá ykkur.

Heiða sóllllllllllllll

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 12:42:49 / Heiða sól

18. ágúst, kominn tími á nýtt hér

Hæ allir

Takk fyrir þessi fallegu orð í minn garð Helga mín og til hamingju með nýja krílið. :)
Takk Ásta mín fyrir að blessa mig.

Ég er á fullu að lesa fyrir próf sem ég fer í þann 20. þessa mánaðar og hef ekki farið mikið út síðan ég byrjaði að lesa.

Ég segi ykkur meira þegar ég er búin. Það gengur ennþá mikið á en ég er ekki að hugsa um það núna.

takk fyrir mig og blessanir til allra.

kv.
Heiða sól:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.06.2008 14:18:37 / Heiða sól

16. júní 2008

Sæl verið þið sem hér kíkið inn og lesið. Takk fyrir þið sem kvittið.

Ég vil þakka öllum þeim sem hafa tekið sér tíma til að biðja fyrir okkur kærlega fyrir og vinsamlegast haldið því áfram. Ennþá gengur mikið á. Ég er ennþá dáin á innan og stödd í gröfinni með Lasarusi en hvenær upprisa mín verður :cry: veit enginn.

Ástandið er erfiðast fyrir okkur hjónin okkur langar til að vera hamingjusöm en erum það bara ekki:!::!::!::!:  Tips eru vel þegin.

Mig dreymdi fyrir nokkru mann sem sagðist ætla að spilla mér og hef upplifað mig gera ýmislegt sem ég er ekki vön að gera án þess að líða illa í sálinni minni yfir því síðan, sem dæmi:

ók ég mjög glannalega síðast þegar ég fór norður, ég á það til að bölva í huganum,
ég skammast mín ekki fyrir að vera reið við GUð ALMÁTTUGAN skapara himins og jarðar
og margt fleira er ég að finna inni í mér sem ég hélt að væri farið, þar sem það að gefa Jesú Kristi líf sitt gerir mann að nýrri sköpun. Hvað þetta þýðir allt saman hinsvegar veit ég ekkert um.

Ég ætla samt að halda :s í það að ,,að allt samverkar þeim til góðs sem elska Drottinn" og þrátt fyrir allt þá er ég skrifuð í lífsinsbók og enginn :!::!::!:getur tekið það frá mér sama hversu langt ég þarf að sökkva í vol og vandræði á þessu grafartímabili mínu.

Æji ég get ekki skrifað meira í dag.
Bið að heilsa ykkur og óska ykkur öllum góðs dags í dag og á morgun sem er 17. júní og verður í Jesú nafni :!::!: góður dagur fyrir mig og mína.


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 14:10:17 / Heiða sól

ég get ekki meira


Þessi vika er búin að vera ein sú ömurlegasta/erfiðasta á þessu ári hjá mér (og hafa þær nú samt margar hverjar verið erfiðar) 
Það virðist ekki geta gerst neitt jákvætt þá er ég að meina: það er gott að fá niðurstöður en sumar eru bara erfiðara höndla en aðrar. Mig vantar að eitthvað jákvætt gerist ,,with no bad strings attached to it." og undanfarið hefur það bara ekki verið að gerast og þegar maður heldur að nú geti hlutirnir ekki versnað meira þá komu upp fleiri erfiðir hlutir þannig að jú hjá mér getur vont versnað í þessari viku. Eða kannski er ég bara búin að fá nóg og get ekki meira af þessu Job dæmi
Ég set þessar fréttir ekki inná netið þannig að þeir sem vilja vita, eða hafa nógu mikinn áhuga á mér og mínu lífi láta þá heyra í sér. 

Hvenær er nóg, nóg? hvenær veit ég að hann veit að ég get meira en ég veit, ég get ekki meira. Í góðri bók stendur að enginn gangi í gegnum meira en hann þolir, þýðir það að þegar búið verður að grafa mig þá er þessu lokið?

Svarið nú þeir sem telja sig geta

Kv.
Heiða Björk.

Ég bið samt Guð um að halda áfram að blessa ykkur til anda, sálar og líkama. Veita ykkur það sem hjarta ykkar þráir og gefa ykkur ríkulega af öllu því sem hann á til að gefa.
AAAAAMMMMMMMEEEEEEEEEENNNNNNNNNNNN.

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 03:06:41 / Heiða sól

Hugsun

Sæl verið þið þarna úti,
Ég er að velta fyrir mér að leggja þessari síðu um ókomna tíð. Ég finn það að þetta er alltof ópersónulegt fyrir mig. ;) Ég hef heldur engan tíma til að vera skrifa eða kíkja á þessa síðu til að sjá að fáir eða enginn kommentar á það sem ég set frá mér.
Þá er alveg eins gott að hringja bara. Ekki satt?

Klukkan er orðin ógurlega margt og ég ætla koma mér í svefninn, vonandi kemur hann sem fyrst til að fara með mig í draumalandið. :|

Vinir og óvinir nær og fjær, ég bið að heilsa eftir Inga Té og fæ vonandi að heyra ykkar álit á þessari hugsun minni. :)

Góða nótt og Pabbi blessi ykkur á alla mögulega vegu sem þið þurfið á að halda.
Heiða sól biður ykkur vel að lifa.

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 00:32:54 / Heiða sól

orðin amma !!!

:lol::lol: Já sæl verið þið öll sömul sem hafið nennt að kíkja hér við undanfarið.:lol: Það hefur ekki verið mikil hreyfing á þessari síðu en hér kemur góð færsla.

Þann 04.04.08 kl 5.55 fæddist þeim Sævari og Guðrúnu yndisleg lítil stelpa, 13 merkur og 51cm. Hún er svo sæt, líkist pabba sínum mikið og mömmu sinni líka, enda töluverður hjónasvipur með þeim skötuhjúum. Ég fékk að vera viðstödd og þetta gekk allt saman eins og í góðri lygasögu. Margar konur hefðu verið tilbúnar að gera þetta eins og þetta gekk hjá Guðrúnu. Ég var svo stolt af þeim báðum, Sævar var eins og hann væri búinn að vera viðstaddur margar fæðingar, leið ekki yfir hann og var Guðrúnu stoð og stytta.:lol:

Skólinn minn gengur eins og hann gengur. Jóhann Samúel að verða sex ára eftir sex daga og orðinn stóri bróðir og ýmislegt fleira sem ekki er skrifað hér hefur gengið á. Þeir sem það vilja vita verða að gjöra svo vel að heyra í mér í síma, og ekki munu allir sem hringja fá að vita allt.

Klukkan er orðin margt og kominn tími til að fara hvíla sig. Ég bið Pabba á himnum að blessa alla þá sem hér koma við og alla þá sem gera það ekki. :) Bíð ykkur svo bara góða nótt.
Kv.
Heiða Björk sól, amma

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 08:38:06 / Heiða sól

25. febrúar

Sælt veri fólkið.
Hér hefur ekki verið skrifaður stafur í langann tíma og best að gera bragarbót á því.
Við skruppum norður á föstudag að hitta fjölskylduna og fara í afmælisveislur:!: það er skemmst frá því að segja að það var skemmtilegt og nærandi fyrir maga og sál að gera það. Aðalveislan var á laugardeginum og hófst í innisundlaug Akureyrarlaugar kl 11.00 þar sem spilað var blak og aðrir leikir. Síðan var farið að næra sig og svo fóru þeir sem fullorðnir töldust upp á skotæfingasvæði eitt að skjóta úr riffli. Jú ég prófaði og komst að þeirri niðurstöðu að ég og byssur eigum ekki samleið, bæði vegna þess að ég gat ekki haldið nógu fast og svo sló byssan mig í framhaldinu. Minn yndislegi ektamaki skaut niður 6 leirdúfur og hafði hann ekki snert á svona vopni áður. Kl 19.00 var svo komið að kveldmatnum og var heldur betur troðið í sig MMMMMMMM  en það sá ekki högg á vatni svo að á sunnudeginum var annar í afmælisveislu til að grinka aðeins á byrgðunum. Bróðir minn og co geta haldið margar veislur í viðbót.

Til hamingju með afmælið í dag Hrabba okkar.:lol: og við þökkum kærlega fyrir góða skemmtun og fjölbreytta.

Annars er allt við sama ég á fullu í skólanum og það gengur bara vel. Fer í próf í þroskanum 12. mars og þá verður eitt fagið sem ég er í búið og þá eru bara tvö eftir á þessari önn. Ég klára reyndar annað fag líka þannig að planið er að hafa bara eitt fag ,,Samskiptafagið" eftir páska. Vonandi gengur það upp.

Ég veit að tenglarnir mínir eru ekki allir sjáanlegir þar sem ég er að vinna í síðunni, ég var að laga til eftir breytingarnar hjá blogcentral.is og týndi þeim :(  ég vona að ég komi þessu öllu í lag, sem allra fyrst aftur.

Jæja ég er að hugsa um að henda mér í bælið að lesa fyrir Samskiptin sem eru á morgun.   Heyrumst síðar.

Kveðja,
Heiða sól

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 19:12:07 / Heiða sól

30. janúar 2008

Halló allir, :lol:

Í dag ætla ég að gera svolítið sem ég hef ekki gert áður á bloggsíðum mínum. Ég ætla auglýsa eitthvað annað en mig og mína. ;)

Fjölskyldan í vetrarfríi í Vindáshlíð 

Er kominn tími til að slappa af og eiga notalega stund með fjölskyldunni? 

Í Vindáshlíð í Kjós verður boðið upp á skemmtilega og fræðandi helgardvöl dagana 1.-3. febrúar annars vegar og 15.-17. febrúar 2008, hins vegar þegar vetrarfrí eru í mörgum grunnskólum landsins.

Sérfræðingur á sviði uppeldismála flytur uppbyggjandi fyrirlestra um samskipti í fjölskyldum. Skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna. 

Verð aðeins krónur 5.900 á mann.  Ókeypis fyrir börn yngri en þriggja ára.  Hámarksverð á fjölskyldu krónur 23.000.  Innifalið: matur, gisting  og öll dagskrá. Meðfylgjandi er dagskrá og nánari upplýsingar.   

Fjölskyldan í vetrarfríi í Vindáshlíð  1.-3. og 15.-17. febrúar 2008 

Námskeið fyrir foreldra og börn þeirra um uppeldi og samskipti 

Helstu markmið fræðslunnar eru:
  • Að stuðla að gagnkvæmri virðingu og trausti í samskiptum foreldra og barna
  • Að hvetja foreldra og börn til að setja sig í spor hvers annars í ýmsum aðstæðum heima fyrir
  • Að hvetja foreldra og börn til að ræða ýmsa daglega árekstra á heimilinu og leysa ágreining á farsælan hátt
  • Að hvetja foreldra og börn til að huga að jákvæðum þáttum í fari hvers annars til að efla jákvæða sjálfsmynd þeirra
  • Að hvetja foreldra og börn til að huga að gildi notalegra samskipta heima fyrir[1]

Föstudagur                                                                                                                         18.30 Raðað í herbergi, 19.00Kvöldmatur                                                                                                                                                                                                          20.00 Fjölskyldur leysa þrautir og verkefni saman                                                       22.00 Kvöldhressing og góða nótt 

Laugardagur                                                                                                                        09:00 Morgunmatur                                                                                                          10.00 Fyrirlestur fyrir foreldra: Uppeldishættir foreldra / Stund fyrir börnin             12.00 Hádegismatur                                                                                                 13.00 Útivera/íþróttahús og föndur                                                                           15.30 Kaffi                                                                                                              16.00 Fyrirlestur fyrir foreldra: Glíman við ágreiningsmálin / Stund fyrir börnin      18.30 Kvöldmatur                                                                                                   19.30 Kvöldvaka 21.00 Náttfatapartý fyrir börnin / Kósíkvöld fyrir foreldrana.  

Sunnudagur                                                                                                                         09.00 Morgunmatur                                                                                                 10.00 Fjölskyldur vinna að verkefni saman                                                                  11:00 Helgistund í kirkju                                                                                               12.00 Hádegismatur                                                                                                13.00 Heimför  

Skráning fer fram á Holtavegi 28, Reykjavík og í síma 588 8899.Síðustu skráningardagar eru 29. janúar og 12. febrúar eða meðan húsrúm leyfir. 

Fyrirlesari Hrund Þórarinsdóttir, uppeldisfræðingur og djákni, hrund@kirkjan.is       Umsjón Hólmfríður Petersen, framkvæmdastjóri Vindáshlíðar, holmfridur@kfum.is



[1] Unnið verður út frá bókinni Samvera. Ræðum saman: Heima eftir Sigrúnu Aðalbjarnardóttur og Árnýju Elíasdóttur


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 18:55:18 / Heiða sól

26. janúar 2008

Sælt veri fólkið.:)

Það er allt gott að frétta héðan og lífið gengur sinn vanagang. Ég er í þrem fögum í skólanum í vetur og telst það vera 78% nám. Ég ákvað að það myndi passa betur við fjölskildu lífið okkar að hafa það svona. Ég er sem sagt að klára Þroskaáfangann á þessari önn og er svo í Samskiptum og Starfskynningu eða 10 og hálfri einingu. Það er samt alveg ótrúlega mikið að gera. Ég er ekki í kórnum og ég sakna þess mikið, það verður bara að hafa það.

Strákarnir Tómas 14 og Aron 10 eru búnir að vera í prófum og það kemur í ljós á fimmtudaginn hvernig þeim gekk. Aron er komin í fimmta bekk og er í fyrsta skipti í tveggja vikna prófatörn og hann var ekki vitund hrifinn get ég sagt ykkur.;)

Mér þykir alveg rosalega vænt um ykkur sem kíkið á þessa síðu, hvort sem ég þekki ykkur eða ekki. Það er kannski svolítið skrítið að skrifa svona ég svona er ég bara og þið verðið bara að sætta ykkur við það.:lol:

Núna ætla ég að fara læra og læt heyra í mér hér síðar.

Bless í bili ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 17:11:02 / Heiða sól

1. janúar 2008 kl 16.53

:lol: Sælir allir lesendur mínir og gleðilegt nýtt ár.

Hvernig leggst svo þetta ár í ykkur? Kannski of snemmt að segja ha? Já ég veit, en engu að síður eru þó nokkrir sem fá tilfinningu fyrir því hvernig nýtt ár á eftir að vera og því ég er að forvitnast. ;) 

Hverjir sáu einn meðlim minnar fjölskyldu í áramótaskaupinu í gær? :haha: ég er mjög forvitin um það, því að sá hinn sami stóð sig mjög vel og handriti hans atriðis var breytt svo að hann þyrfti ekki að búa til eitthvað sem ekki var satt.!!!!!!  Fín getraun svona á nýju ári. ;) Reyndar var mitt nafn á aukaleikaralistanum og fannst mér það mjög fyndið :haha: því ég kom þar hvergi nærri, það var hins vegar?????????????? sem var líka á aukaleikaralistanum og ætla ég að viðurkenna það opinberlega að ég er mjög montin af honum og er það vægt til orða tekið.:lol: Ég hlakka til að fá svörin ykkar.  Það eru mjög fáir sem vissu af þessu fyrirfram en einhverjir þó. :D honum sjálfum fannst þetta mjög skemmtileg lífsreynsla. Hver veit kannski fær sá hinn sami að gera meira af þessu.

Ég ætla ekkert að fara út í það hvernig ég hef það persónulega, nenni því ekki. Ég læt þessa fígúru tala fyrir mig :(. eða svona líður mér að innan. Af hverju? veit ég ekki almennilega og svo kemur punktur.

Hlakka til að fá komment frá ykkur og heyra í ykkur á nýju ári.

Kveðjur og bæn um að það kraftaverk sem gerði okkur mönnunum kleyft að læra að elska hvort annað, mætti vera ríkjandi í öllum okkar verkum og tali þegar við kemur náunga okkar, frá mér til ykkar hvort sem þið erum vinir eða óvinir, þekkið mig eða ekki, í kraftaverksins nafni. AMEN.

Heiða sól.

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 12:58:34 / Heiða sól

27. desember

Hæ öll.

Hér er allt á fullu eins og vanalega. Erla og Danni fluttu út og búa í Garðsenda. Sævar og Guðrún stefna svo á Suðurnes og flytja til Njarðvíkur 4. janúrar 2008 og þá verðum við bara sex eftir á þessu heimili. Það verður meira en lítið skrítið, en ég ætla færa Tómas í gamla herbergið hans Sævars og Aron í Tómasar og svo fæ ég herbergið hans Arons til að læra í. Það verður nú alveg dásemd þá þarf ég ekki að halda vöku fyrir manninum mínum ef ég vil vaka á nóttunni við að læra. Þá fer skrifborðið og hillan út úr stofunni og stofan verður ekki lengur tölvuherbergi líka. Ég hlakka svo til. 

Ekki það að ég vilji endilega losna við elstu börnin mín, sem ég elska svo mikið. En þau þurfa að fara spreyta sig á eigin spítur og í Jesú nafni þá mun það ganga bara vel hjá þeim. AMEN.

Ég ætla bara að vera í þrem fögum í skólanum eftir jól. Strákarnir mínir eru ekki að höndla alla þessa fjarveru okkar foreldranna og þeir þurfa að eiga mig að þegar pabbi yndislegastur þarf að vera í vinnunni. Stundataflan mín segir þá að ég komi til með að vera í skólanum þrjá daga vikunnar. Og svo get ég verið að læra á meðan þeir eru í skólanum þess á milli.

Eins og einhver ykkar muna kannski þá er Jóhann Samúel með greiningu frá Greiningarstöðinni í Kópavogi upp á: Margvíslegar blandnar þroskaraskanir. Þetta eru orð sem ég hef aldrei skilið almennilega en eru þó samt þarna um hann. Hann hefur þó komið um langann veg og telst nú í dag vera nokkurn vegin búinn að ná sínum aldurshóp í þroska, sem er frábært, en hann er samt ekki sloppinn og þarf að fá hjálp þegar hann fer í grunnskólann næsta haust.

Allir að muna að horfa á áramótaskaupið!!!!!!!!!!!!! Þið gætuð þekkt  einhvern sem kemur þar fram. :D

Bið um Guðs blessun öllum til handa sem ég þekki og einning til þeirra sem ég þekki ekki, bæði vinum og óvinum. Bið þig heilagi faðir á himnum um að árið 2008 mætti vera ár náungakærleika og gleði þar sem við gerum það sem við getum til að gleðja aðra og elska. Í Jesú nafni. AMEN.

Heiða sól.

 

 

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 14:12:54 / Heiða sól

2. desember

Sæl öll sem þetta lesið.

Ég er að prufa hvort þetta gengur upp.

Það er mikið sem gengur á varðandi gangandi vegfarendur og bílstjóra þessa dagana. Ég ætla segja það hreint út að ég grét þegar ég las það í morgun að litli drengurinn frá Keflavík er dáinn.:cry: 

Það sem kom svo fyrir Emmu Elísu á fimmtudaginn þegar keyrt var á hana og hún handleggsbrotin á olnboga og á úlnlið gerir mig ennþá ákveðnari í því að fá Fellsmúlanum lokað. Bílstjórinn sem keyrði á Emmu kom á fleygi ferð upp Fellsmúlann. Þið megið endilega biðja fyrir því að það verði að veruleika svo að komið verið í veg fyrir dauðaslys við umferðarljósin Háaleitisbraut-Fellsmúla. Ef barnið sem var að fara yfir gangbrautina hefði verið minna gæti það verið dáið  því að bílstjórinn sá Emmu ekki, heldur varð bara var við hana þegar spegillinn á bílnum rakst utan í hana. Hún átti réttinn, var að ganga yfir gangbrautina á grænu ljósi.

Ég er að fara ganga í hús til að klára undirskriftasöfnunina um lokun Fellsmúlans við Síðumúla og þá verður Fellsmúlinn bara fyrir íbúana hér.

Heyri í ykkur seinna.

Kv. Heiða Björk sem er kennd við sól.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 11:27:57 / Heiða sól

10. nóvember 2007

Halló, halló, halló.

Þá læt ég loksins sjá frá mér blogg aftur. Ég er vonandi að verða frísk svo ég geti farið að stunda skólann minn aftur.

Hér gengur allt sinn vanagang nema þegar uppúr síður, en sem betur fer er að það nú ekki oft miðað við fjöldann á heimilinu.

Ég er svo mikið að velta Guði fyrir mér þessa dagana. Hef verið að horfa á Ómega í veikindum mínum og þar eru svo margir þættir sem slá hvern annan niður að það hálfa væri nóg. Allir tala þeir um Guð eins og þeir þekki hann best og að hinir viti ekki nógu vel hvað á að gera til að frelsa heiminn. Ég hélt hins vegar að það væri Guð faðir sem ætlaði og hefði verið að sjá um það, en það er greinilega ekki rétt hjá mér. Svo er einn sem segir að ef við köllum Guð ekki YAHWEY, ég held það sé skrifað svona ég er ekki viss samt og vona að ég móðgi ekki föður minn á himnum með þessu, þá séum við að nota nafn hans eins og hann sé heiðinn Guð. Orðið Jesús segir hann líka að sé ekki rétt og að kalla son Guðs nafni sem tilheyri honum ekki sé ekki gott, hann kallar hann YASHUA eða eitthvað svoleiðis. Hverju á maður að trúa þegar allt er í upplausn vegna þess að Biblían er þýdd svona en ekki hinseigin? Hvað er í gangi?

Teddi okkar er heldur upp á 40 ára afmælið í dag, hann á reyndar ekki afmæli fyrr en í desember en who cares.:):) Innilega til hamingju með daginn Teddi minn og ég vona að allir þeir sem fara inn á síðuna mína í dag sendi þér auka afmæliskveðjur.:lol:

Aron Davíð er að fara keppa í fótbolta með Fram núna á eftir. Hann hefur ekki verið að æfa lengi eða mikið vegna þess að þar eru strákarnir sem voru að leggja hann í einelti sem mest í fyrravetur. Við ákváðum að vera ekki að ýta honum af stað í neitt heldur láta hann alfarið um að velja hvort eða hvenær hann byrjaði aftur. Ég ætla að viðurkenna að ég hef verið og er ennþá mjög sár vegna þess hvernig komið hefur verið fram við hann, Sævar og Svanlaug í þessu félagi. En eins og ein góð vinkona hefur sagt svo oft ,, Guð hlýtur að elska ykkur rosalega mikið" þá er hún að tala um hvað henni hefur fundist lífið okkar Svanlaugs líkast lífi Jobs, hann var einstaklingur sem gekk í gegnum mikla erfiðleika í Biblíunni, fyrir þá sem ekki vita en eru kannski að lesa. 

Ég ætla hætta núna vegna þess að ég finn að ég er búin að fá nóg í bili.

Ég bið föður minn á himnum að blessa ykkur daginn til anda, sálar og líkama og það sem eftir er af ykkar dögum. Mættu þeir vera fullir af gleði og hamingju. Ég ætla ekki í bænagönguna en ég ætla taka þátt í bæninni engu að síður.

Kv. Heiða Björk sem er kennd við sól.

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 14180
Klukkan